Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Þegar sjóðfélagi greiðir iðgjöld ávinnur hann sér ekki aðeins rétt til ævilangs lífeyris, heldur einnig maka sínum rétt til makalífeyris falli sjóðfélaginn frá. Makalífeyrir er að lágmarki greiddur í 3 ár að fullu og hálfur í 2 ár til viðbótar.
Við andlát er greiddur makalífeyrir til eftirlifandi maka og barnalífeyrir til barna yngri en 20 ára. Réttur til makalífeyris er alltaf fyrir hendi, en hann er mismikill eftir aðstæðum sjóðfélaga.
Makalífeyrir nemur 60% af áunnum rétti sjóðfélaga. Ef sjóðfélagi hefur greitt ákveðið lágmark í lífeyrissjóð þrjú ár fyrir andlát ávinnur sjóðfélagi sér einnig framreiknaðan rétt. Þetta eru mjög mikilvæg réttindi því réttindin aukast eins og greitt hefði verið í sjóðinn til 65 ára aldurs og fær maki 60% af þeim viðbótarrétti.
Eldri ákvæði í samþykktum eru að auki enn í gildi:
Besta leiðin er alltaf valin í hverju tilviki fyrir sig, í samráði við sjóðfélaga.
Maki telst sá sem við andlát sjóðfélaga er
Sameiginlegum fjárhag maka og þess látna má ekki hafa verið slitið fyrir andlátið - hjón eða sambúðarfólk þarf að hafa verið með sameiginleg fjármál við andlátið. Sambúðin þarf einnig að hafa varað samfleytt í að minnsta kosti tvö ár.
Makamissir hefur óhjákvæmilega miklar breytingar í för með sér. Makalífeyrir er mikilvægur þáttur í fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar við slíkar aðstæður.
Réttur til barnalífeyris myndast ef greitt hefur verið í sjóðinn 6 af 12 síðustu mánuðum eða í 24 mánuði af síðustu 36 mánuðum. Ef greitt hefur verið í fleiri en einn sjóð fyrir andlát getur barnalífeyrir skipst milli sjóða.
Mánaðarlegur barnalífeyrir með hverju barni er [childPension]. Barnalífeyrir vegna andláts sjóðfélaga er greiddur á reikning barns.
Nánari upplýsingar um barnalífeyri má finna í grein 15 í samþykktum sjóðsins.
Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Aðeins er lánað gegn íbúðarhúsnæði á Íslandi í eigu lántaka.
Áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins, mega við lánveitingu ekki vera umfram 70% af verðmæti veðs eins og það er tilgreint í grein þessari.
Ef veðsetning vegna lántöku eða veðflutnings lána hjá sjóðnum er umfram 65% er almennt gerður áskilnaður um að veðsetning til þriðja aðila (annars en Lífeyrissjóðs verzlunarmanna) nemi ekki hærra hlutfalli en 20% af metnu virði veðsins.
Veðsetning skal reiknuð út frá söluverði samkvæmt kaupsamningi þegar um lánveitingar í tengslum við fasteignaviðskipti er að ræða. Annars skal miða við gildandi fasteignamat.
Já, lífeyrisgreiðslur eru skattskyldar með sama hætti og almennar launatekjur. Þú þarft því að gera ráð fyrir að greiða skatt af þeim tekjum sem þú færð frá sjóðnum eftir því skattþrepi sem þú ert í.
Sjóðurinn sér um að skila staðgreiðslu af lífeyrisgreiðslum til skattayfirvalda. Skattkort eru rafræn og nauðsynlegt er að láta vita hversu hátt hlutfall af skattkorti þú vilt nýta hjá sjóðnum.
Skattkort lækkar skattinn því það veitir rétt til persónuafsláttar á staðgreiðsluári. Eigi lífeyrisþegi ónýttan persónuafslátt er mikilvægt að láta sjóðinn vita.
Lífeyrisþegar geta nýtt allt að 100% af ónýttu skattkorti maka til skattalækkunar.
Við fráfall maka geta lífeyrisþegar nýtt skattkort makans í 9 mánuði frá og með andlátsmánuði.
Réttindi þín sem slík erfast ekki. Hins vegar er rík fjárhagsleg vernd fyrir fjölskylduna ef þú fellur frá. Almenna reglan er að maki fær makalífeyri í að lágmarki 5 ár en er oft greiddur lengur eða þar til yngsta barn nær 23 ára aldri. Þá er barnalífeyrir greiddur fyrir hvert barn fram að 20 ára aldri þess.
Þannig er verndin mest fyrir þá sem eiga ung börn og mestu skiptir fyrir fjölskylduna að hafa fjárhagslegt öryggi.
Ef lífeyrisþegi býr í landi sem Ísland hefur gert tvísköttunarsamning við og samningurinn kveður á um að lífeyristekjur eigi að skattleggja í búseturíki, þarf hann að sækja um undanþágu frá greiðslu skatta árlega á heimasíðu Skattsins.
Lífeyrissjóðnum ber að halda eftir staðgreiðslu nema samþykkt undanþága liggi fyrir.
Samkvæmt tvísköttunarsamningi Norðurlandanna skal lífeyrir skattlagður í því landi sem hann er greiddur. Allur lífeyrir sem aðilar búsettir á Norðurlöndunum fá héðan er samkvæmt því skattlagður á Íslandi og aldrei gefnar út undanþágur.
Lífeyrissjóðnum ber samkvæmt því að halda eftir staðgreiðslu en persónuafsláttur miðast við greiðslutíma. Ef um eingreiðslu er að ræða fær viðkomandi persónuafslátt miðað við greiðslumánuðinn (engin uppsöfnun).
Mánaðarlegur barnalífeyrir með hverju barni er [childPension].
Maki er sá sem hefur verið í hjúskap eða sambúð með sjóðfélaga í tvö ár, að minnsta kosti. Viðmiðið er að hjón eða sambúðarfólk hafi haft sameiginleg fjármál í tvö ár. Hjón mega ekki vera skilin að borði og sæng því þá fellur niður réttur til makalífeyris.
Makalífeyrir er alltaf að lágmarki 60% af áunnum réttindum sjóðfélagans við 67 ára aldur.
Mun meiri verðmæti felast alla jafna í rétti til framreiknings á makalífeyri. Það þýðir að til útgreiðslu eru þau réttindi sem sjóðfélagi hafði þegar áunnið sér við andlátið en við bætast réttindi eins og sjóðfélaginn hefði greitt til sjóðsins af sömu launum til 65 ára aldurs. Makinn fær 60% af þeim rétti.
Til að fá bæði áunninn og framreiknaðan rétt til makalífeyris þarf sjóðfélagi:
Að hafa greitt í sjóðinn í a.m.k. 3 af síðustu 4 árum fyrir andlát.
Að hafa greitt í sjóðinn í a.m.k. 6 mánuði síðasta árið fyrir andlát.
Að hafa greitt iðgjald í sjóðinn að lágmarki 178.435* krónur hvert þessara þriggja ára.
* 178.435 kr. er grunnupphæð og skal verðbætt í byrjun hvers árs skv. vísitölu neysluverðs, miðað við grunnvísitölu 513 í janúar 2022.
Í stuttu máli er makalífeyrir greiddur í að lágmarki í fimm ár og einnig þar til yngsta barn verður 23 ára, auk barnalífeyris til 20 ára aldurs yngsta barns.
Ef þið eigið börn undir 23 ára aldri: Maki þinn fær makalífeyri þangað til yngsta barnið hefur náð 23 ára aldri.
Ef maki þinn er öryrki og er yngri en 65 ára: Makalífeyrir er greiddur á meðan makinn er öryrki en að hámarki til 67 ára aldurs.
Nánari upplýsingar um eldri greinar má finna í samþykktum.
Skipting réttinda milli hjóna hefur ekki áhrif á makalífeyri, hún hefur eingöngu áhrif á ævilangan lífeyri.
Skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris er að foreldri hafi greitt í sjóðinn í tvö ár á síðustu þremur árum eða í að minnsta kosti sex mánuði síðasta árið fyrir fráfall.
Þú sækir um makalífeyri á mínum síðum. Ef hjón eru gift þá þarf ekki nein gögn því sjóðurinn hefur aðgang að þjóðskrá. Ef um sambúð er að ræða þarf að koma staðfesting á að sambúð hafi varað í tvö ár.
Ef makinn giftist aftur eða stofnar til sambúðar innan þess tíma sem hann/hún á rétt á makalífeyri fellur sá réttur niður.
Þú getur notað skattkort maka í níu mánuði, að meðtöldum mánuðinum þegar maki lést.
Já, greiddur er tekjuskattur af makalífeyri eins og öðrum tekjum.
Barnalífeyrir er nú í ágúst 2023 25.463 kr. á mánuði fyrir hvert barn og er greiddur til 20 ára aldurs þess. Barnalífeyrir er verðtryggður miðað við vísitölu neysluverðs.
Barnalífeyrir er greiddur með börnum sjóðfélaga ásamt fósturbörnum og stjúpbörnum sem voru á framfærslu sjóðfélaga.
Barnalífeyrir vegna andláts foreldris er greiddur inn á reikning barnsins.
Á hverju ári þurfa þeir sem búa erlendis og fá lífeyri greiddan frá sjóðnum að senda svokallað lífsvottorð til staðfestingar dvalar í viðkomandi landi. Viðeigandi yfirvöld á hverjum stað; þjóðskrá, bæjarskrifstofur, skattstofa eða aðrir opinberir aðilar gefa út slíkt vottorð. Það þarf að berast sjóðnum fyrir 15. maí ár hvert.
Sjóðfélagar sem búa erlendis þurfa að koma upplýsingum um netfang sitt til sjóðsins eða skrá það inn á Mínar síður
Nei, mikill munur getur verið á því hver réttindi sjóðfélaga eru til áfallaverndar. Ákveðin lögbundin lágmörk eru skilgreind í lögum en samtryggingarsjóðir bjóða almennt talsvert betri vernd. LV er þar fremstur í flokki og veitir mun betri áfallavernd en lög kveða á um. Almennt eru sjóðir sem leggja áherslu á séreign umfram samtryggingu með rýrari réttindi til áfallaverndar í staðinn.